SMÁSTUND
Lag: Sveinbjörn Grétarsson og Kristján Viðar Haraldsson
Texti:Kristján Viðar Haraldsson
Smástund
bara örlitla stund
Þó ég hefði reynt að gleyma
ég gleymi aldrei þér

Við vorum ung
sólin svo rauð
Það var eitthvað stærra og meira
ógleymanlegt

Mér finnst tíminn líða allt of fljótt
bráðum er hún búin þessi nótt
Ég verð að fá að taka þig í fangið fagra freyja
Ég hef alltaf beðið eftir því
að ég myndi hitta þig á ný
og ef ég fæ að kyssa þig þá glaður skal ég deyja

Nóttin var stutt
en snertingin hrein
Þú hvíslaðir ástarorðum
í eyrað á mér

Svo hvarfst þú á braut
ég varð eftir einn
Vindurinn hann lék í trjánum
töfrandi þögn
Mér finnst tíminn líða allt of fljótt
bráðum er hún búin þessi nótt
Ég verð að fá að taka þig í fangið fagra freyja
Ég hef alltaf beðið eftir því
að ég myndi hitta þig á ný
ef ég fæ að kyssa þig þá glaður skal ég deyja

Þetta er sagan endalausa
Ung stúlka hittir strák
og þau gleyma stund og stað

Mér finnst tíminn líða allt of fljótt
bráðum er hún búin þessi nótt
Ég verð að fá að taka þig í fangið fagra freyja
Ég hef alltaf beðið eftir því
að ég myndi hitta þig á ný
ef ég fæ að kyssa þig þá glaður skal ég deyja

Smástund
bara örlitla stund
[Prenta textann]